Gunnar Örn Gunnarsson

1946 - 2008

 
 
15181245_10211114707044425_3019959549450465835_n.jpg
 
 
 

Gunnar Örn Gunnarsson fæddist í Reykjvík 2. desember 1946. Hann var sonur Guðríðar Pétursdóttir húsmóður og Gunnars Óskarssonar söngvara og deildarstjóra.

Gunnar var sjálflærður myndlistarmaður, sem kom fyrst fram á sjónarsviðið snemma á áttunda áratugnum. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Unuhúsi 1970 en alls urðu einkasýningar Gunnars á sjötta tug hér á landi og erlendis. Hann tók einnig þátt í fjölda samsýninga hérlendis, á Norðurlöndum, víða um Evrópu, í New York, Chicago, Sao Paulo og Tókýó.

Hann var fulltrúi Íslands á Tvíæringnum í Feneyjum 1988. Listasafn Íslands, Guggenheim í New York og Sabu Museum í Tókýó eru meðal safna sem eiga verk eftir Gunnar Örn.

 

Gunnar Örn Gunnarsson was born in Reykjvík on December 2, 1946. He was the son of Guðríður Pétursdóttir housewife and Gunnar Óskarsson singer and head of department.

Gunnar was a self-taught artist, who first came into the scene in the early 1970s. He held his first private show in Unuhús in 1970, but in total Gunnar's private shows were around 70 in Iceland and abroad. He also participated in numerous group exhibitions in Iceland, in the Nordic countries, across Europe, in New York, Chicago, Sao Paulo and Tokyo.

He represented Iceland at the Venice Biennale in 1988. The National Gallery of Iceland, Guggenheim in New York and the Sabu Museum in Tokyo are among the collections of works by Gunnar Örn

Gunnar Örn fluttist ásamt fjölskyldu sinni að Kambi árið 1986.

Vélarskemma sem fyrir var á staðnum var breytt í vinnustofu og starfaði hann þar við list sína í rúm 20 ár. Viðfangsefnin voru af fjölbreyttum toga svo sem olía og akrýl á striga, grafík, teikningar og skúlptúrverk.

Gunnar Örn var andlega þenkjandi og sótti sér innblástur í náttúruna. Hann íhugaði á hverjum degi og stundaði fjarheilun.

Tónlist skipaði stóran sess í daglegu lífi Gunnars. Á vinnustofunni var iðulega mikið og hátt spilað, allt frá klassískri tónlist yfir í Jimi Hendrix. Á yngri árum lærði Gunnar á selló í Kaupmannahöfn, en í seinni tíð spilaði hann sér til skemmtunar á gítar og trommur.

Gunnar lést árið 2008 eftir stutt veikindi.

 
Ferilskrá
 

Gunnar Örn moved with his family to th farm Kambur in 1986. He changed an old machine house into a studio, there he worked on his art for over 20 years.

He used different methods in his art such as oil and acrylic on canvas, graphics, drawings and sculpture.

Gunnar Örn was a spiritual thinker and found his inspiration in nature. He meditated every day and practised distant healing. Music played a big role in Gunnar's daily life. In the studio he often played loud music, all from classical music to Jimi Hendrix. In his younger years Gunnar studied cello in Copenhagen, but later he played guitar and drums.

Gunnar died early in 2008 after short illness.

 
CV